Voff voff !

Ef þið viljið frekari upplýsingar um okkur. Þá getið þið haft samband við Eddu í síma 899-3798

Auglýsing

Hérna fáum við nammið okkar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Hvolpar

04. febrúar 2009 klukkan 10:51

Við erum bara þriggja vikna rúsínur. Þrír strákar og tvær stelpur.
Við borðum og sofum allan sólarhringinn og stækkum alveg svakalega hratt. Við erum sko farin að labba um allt og ef mamma skreppur í burtu hlaupum við til hennar þegar hún kemur aftur.
Við erum öll komin með framtíðar heimili og úr þeim var nóg að velja enda erum við líka alveg ómótstæðileg.

Hin fimm fræknu
Hérna erum við öll saman með litlu nebbana okkar :)
 
3ja vikna gaur
Lítið 3ja vikna strákaskinn

Úti að leika

18. júlí 2008 klukkan 18:30

Þegar það er gott veður fáum við að leika í garðinum og það er rosa sport að fá að fara af pallinum út á grasið.
Svartur

Rauður
Er hægt að vera sætari?

Hvolpar eru svo sætir

04. júlí 2008 klukkan 12:05
Jæja hérna eru myndirnar sem ég var búin að lofa.
Eru þær ekki sætar?
Stelpur
Núna eru þau farin að leika sér heilan hellin og mamma og fósturmamma tekur þátt í öllu.
Allir saman
Þetta er Dominik (Nikkí) með ungana sína 5 og stóru stelpurnar hennar Aphrodítu (Affý). Það eru sem sagt 6 stelpuhvolpar og einn rauður hvolpastrákur Svalur
Nikkí er ofurmamma og hugsar svaka vel um börnin sín... Affý leyfir henni meiri að segja stundum að hugsa um sín líka Hlæjandi

Stelpurnar hennar Affý fæddust degi á undan hennar Nikkí og þær eru STÓRAR og kraftmiklar eins og mamma sín. Sú stæsta sést hér á myndinni passa rauðu tístuna. Hún er algjör skæruliði og lætur systkini sín algjörlega finna fyrir því og þau fá ekkert við því gert enda hlammar hún sér bara ofan á þau ef þess þarf.... prakkari!

Hér er Affý
Affý

Lúlú besta tík tegundar

03. júlí 2008 klukkan 09:45
Já það eru sko fréttir úr Hlínarræktun. Hún Lúlú kom sá og sigraði á sumarsýningu Hundaræktafélagsins síðustu helgi. Lúlú fékk 1. einkun og var í fyrsta sæti í opnum flokki og fékk meistaraefni. Síðan fór hún í úrslit og þar var hún valin besta tík tegundar og fékk meistarastig. Síðan lenti hún í öðru sæti í besti cavalierinn. Hér er hún með bikarana sína og borða.
Lúlú best
Alltaf svo fín þrátt fyrir að vera mjög þreytt.
Lúlú eftir erfiðan dag
Sigurvegarar sýningarinnar sáttir
Vinningshafarnir

Hvolpar hvolpar hvolpar - Við erum mættar!

02. júlí 2008 klukkan 16:57
Við erum 6 stelpur... og einn strákur... og fæddumst í lok maí. Við erum sjúklega sæt og myndir eru væntanlegar innan skamms.

Hvolpar

18. október 2007 klukkan 10:00

Dásamlegar fréttir!
Það eru að koma hvolpar.

Hvolpar

Gamalt og gott

12. október 2007 klukkan 10:54
Hæhæ

Það er nú kominn dágóður tími síðan síðasta færsla leit dagsins ljós hér hjá okkur Cavalierunum og tími til kominn að bæta fyrir það.

Nýjar myndir eru væntanlegar en þangað til eru hér fyrirsætumyndir af fyrstu einlitu Cavalierunum á Íslandi.

Neró 
Neró... algjör kóngur. Það voru sko engin vettlingatök þegar hann mætti á svæðið.

Ruby

Ruby alltaf svo settleg og ljúf... og alltaf tilbúin að knúsast.

Kíkið endilega á fróðleikinn hér að ofan Brosandi

Freebie

23. nóvember 2006 klukkan 19:20
Það ríkir mikil sorg á heimiliu í dag því Freebie kvaddi okkur í gær. Hann var nú orðinn óttalega gamall og lúinn greyið enda 10 ára, rétt yfir meðalaldri Cavaliera. Hann er nú farinn til vina sinna, Nerós, Rubyar og Míu. Honum verður sárt saknað Gráta

Við erum alltaf að stækka og stækka....

18. nóvember 2006 klukkan 23:11
Júlíus Sesar og Jökla Sól
Júlíus Sesar, Jökla Sól og Kleópatra II
Erum við ekki sætar fyrirsætur?
Júlíus Sesar og Jökla Sól
Július Sesar og Jökla Sól

....við erum svolitlir prakkarar..... Hlæjandi